Jóhannes Ólafur Sveinn Kristinsson, oftast kallaður J-Óla-Sveinn var í dag dæmdur til 40 ára betrunarvistar. Meðal þess sem hann var dæmdur fyrir er fjölda innbrota á heimili fólks, óeðlilegur áhugi á börnum (myndasafn hans eitt hið svæsnasta sem sést hefur og lýsingar hans á hvernig þau verða að "trúa á hann" minnir illilega allar neikvæðu hliðarnar á sértrúarsöfnuðum), sérlega ill meðferð á hreindýrum í hans vörslu (þeim var lógað eftir skoðun dýralæknis enda langt undir kjörþyngd og með lýsandi nef), fyrir að hafa oft og mörgum sinnum lagt sleðanum sínum ólöglega á húsþökum og fyrir að valda fjölda fólks lífshættu þegar hann ítrekað keyrði sleðann sinn í veg fyrir stórar flugvélar, í flugi. Eins var hann dæmdur fyrir að vera ekki með nauðsynlegan öryggisbúnað í sleðanum sínum. Þar voru engin öryggisbelti, engin slökkvitæki eins og lög gera ráð fyrir, ófullnægjandi hemlunarbúnaður og enginn hvarfakútur til að draga úr útblástursmengun. Fyrir öll þessi atriði var hann dæmdur til eins mánaðar betrunarvistar, skilorðsbundinnar, Fyrir að standa ekki skil á virðiaukaskatti fékk hann 39 ár og 11 mánuði, óskilorðsbundið.
Friday, March 09, 2007
Klukkan er :
Rétt klukka er HÉR
Hlekkir á skemmtilegar síður.
- NÝTT. Le Blog De Nesk. Þessi er frábær.
- Google leitarvélin
- Smábílaklúbbur Íslands
- RC Tech
- PC Modding at Bit-tech
- PC Modding at [Hard]forum
- Mini ITX.
- HackADay, snilldarsíða fyrir fiktara :)
- Veggfóður :-). Konur - bílar
- Digital Photo Challenge. Mikið af flottum Íslenskum myndum.
- Bastard Operator From Hell
Myndasögur.
Nýleg röfl.
- Dularfullt hvítt duftkennt efni hefur fundist á ví...
- Behind the tree was another tree. That wasn't surp...
- Enn berast nýjar hneykslisfréttir af stóra jólasve...
- Skatturinn lokar verksmiðju Jólasveinsins á Tálkna...
- Ég var að pæla. Öryggisbelti í bílum (og flugvélum...
- Þjóðin er eins og pollur. Ef pollurinn er óhreinn ...
- Bílar sem keyra sjálfir. Hugmyndin er tæknilega mö...
- Spekingur sagði eitt sinn: "Ég þekki mig ekki eins...
- Besta band í heimi er komið saman aftur OG plata á...
- Ég trúi á Guð. Ég þoli ekki aðdáendaklúbbana hans.
0 Comments:
Post a Comment
<< Home